Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar

Opnunartímar

Móttakan okkar er opin allan sólarhringinn.
Innritun er í boði frá klukkan 14:00 og útritun er í síðasta lagi klukkan 11:00.

Herbergi

Hótelið býður upp á samtals 138 herbergi. Flest herbergin eru 33 m² (355 ft²) að stærð.

WiFi

Háhraðanet WiFI er í boði á hótelinu og er frítt fyrir alla gesti.

Morgunverður

Morgunverðarhlaðborðið er í boði daglega frá 04:00 til 10:00.

The Take Off Bar

Barinn í móttökunni er opinn daglega frá klukkan 11:00 til miðnættis. Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin!

Bílastæði

Gestir geta notið góðs af ókeypis bílastæðum við hótelið, til langs eða skamms tíma.

Take Off Bistro

Veitingastaðurinn okkar er opinn daglega frá 18:00 til 21:30, og til 22:00 á föstudögum og laugardögum. Hópar þurfa að hafa samband við Hópadeildina og hún mun aðstoða groups@konvin.is

Verð

Öll verð eru í íslenskum krónum (ISK) og gilda fyrir hverja nótt. Virðisaukaskattur (11%) er innifalinn og getur breyst.

Farangursgeymsla

Farangursgeymsla er í boði án endurgjalds fyrir alla gesti.

Hópabókun

Bókun telst til hópabókunar ef hún inniheldur fimm herbergi eða fleiri.
Við þurfum að fá nafnalista fyrir hópinn að minnsta kosti 20 dögum fyrir innritun.

Þóknun

Engin þóknun er greidd til ferðaskrifstofa. Afsláttur á bókun er talinn vera þóknun.

Afslættir

Afslættir eru í boði miðað við fjölda bókaðra gistinátta.